Þykir gjaldið of hátt

Árum saman hefur verið tekist á um það hvernig sjávarútvegurinn …
Árum saman hefur verið tekist á um það hvernig sjávarútvegurinn eigi að greiða fyrir afnotin af auðlindum hafsins. mbl.is/RAX

Ný aðferðafræði verður notuð við út­reikn­ing veiðigjalda í frum­varpi um stjórn fisk­veiða sem leggja á fram í haust.

Útgerðar­menn gagn­rýna að álagn­ing veiðigjalda á næsta fisk­veiðiári sé miðuð við töl­ur frá Hag­stof­unni um af­komu veiða og vinnslu 2012. Aðstæður hafi verið mun betri þá en bæði á þessu ári og í fyrra, að því er fram kem­ur í frétta­skýr­ingu um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

„Við höf­um borgað fá­rán­lega há veiðigjöld síðustu tvö árin. Þeir pen­ing­ar verða ekki notaðir í neitt annað,“ seg­ir Guðmund­ur Smári Guðmunds­son, fram­kvæmda­stjóri Guðmund­ar Run­ólfs­son­ar hf. í Grund­arf­irði, í blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: