Innsýn í þjóðhátíðarlagið

Jón Jónson spilar þjóðhátíðarlagið í nýju myndbroti sem rataði á veraldarvefinn í gær og má sjá hér að neðan. Æstir þjóðhátíðarunnendur ættu þó að halda ró sinni því lagið er enn leyndarmál og er flutningur Jóns ritskoðaður í bak og fyrir.

Hörður Grettisson, formaður þjóðhátíðarnefndar, segir lagið vera svo mikið leyndarmál að jafnvel hann sé ekki búinn að heyra það. „Þeir eru með lagið í stúdíói að klára að útsetja það og svona svo ég bíð bara alveg jafnspenntur og allir aðrir,“ segir Hörður.

Hann segir almenning ekki þurfa að örvænta enda verði lagið frumflutt með pomp og prakt um mánaðamótin.  

„Okkur finnst Jón vera flottur strákur, frábær tónlistarmaður og góð fyrirmynd,“ segir Hörður um ástæður þess að Jóni var treyst fyrir verkinu. „Við höfum mikla trú á því að hann komi með lag sem muni lifa með hátíðinni næstu árin.“

Hörður segir sölu á Þjóðhátíð ganga vel og að bestu ferðirnar með Herjólfi séu margar hverjar þegar uppseldar. Það er því um að gera að kíkja inn á dalurinn.is og tryggja sér miða en í tilefni 140 ára afmælis hátíðarinnar verður dagskráin með glæsilegasta móti.

Óskalisti fyrir þjóðhátíð

Við viljum bara skemmtilegustu skemmtikraftana

Skálmöld og Baggalútur á þjóðhátíð

Quarashi á þjóðhátíð

Mammút og Kaleo á þjóðhátíð

mbl.is