Á leið í land með fyrstu langreyðina

Von er á hval­veiðibátn­um Hval 9 í Hval­stöðina í Hval­f­irði fyr­ir miðjan dag með fyrstu langreyðina sem veiðist á þess­ari vertíð.

Hval­ur 9 var að sigla inn í mynni Hval­fjarðar um eitt­leytið og á því tæp­lega tveggja tíma sigl­ingu eft­ir, seg­ir í frétt Skessu­horns.

Í fyrra kom fyrsta langreyðurin á land 18. júní. Hvöl­un­um verður landað í Hval­stöðinni í Hval­f­irði sem fyrr.

Veiða má 154 langreyðar á þessu fisk­veiðiári. Í fyrra veiddu skip fyr­ir­tæk­is­ins 134 dýr. 

mbl.is