Segja kjarasamningana kolfallna

„Fyrir liggur að kjarasamningar aðildarfélaga ASÍ sem undirritaðir voru í desember 2013 eru kolfallnir,“ segir í ályktun Framsýnar, stéttarfélags. „Kjarasamningarnir byggðu á því að breið samstaða næðist í samfélaginu um stöðugleika og hóflegar launahækkanir til að halda niðri verðbólgu.“

Á sínum tíma varaði Framsýn við undirritun þeirra þar sem þeir væru ekki boðlegir verkafólki, segir í tilkynningu frá Framsýn. Nú hafi áhyggjur félagsins gengið eftir þar sem aðrir hópar launafólks hafi fengið töluvert meiri launahækkanir en félagsmenn Alþýðusambands Íslands. Stöðugleiki sé því ekki í augsýn.

„Ljóst er að aðrir hópar launþega eru ekki klárir í þessa vegferð og hafa krafist og fengið margfalt þær hækkanir sem félagsmenn innan ASÍ fengu í desember,“ segir í ályktun félagsins.

„Framsýn, stéttarfélag telur að ekkert annað komi til greina en að aðildarfélög ASÍ krefjist þess sama fyrir sína umbjóðendur í næstu kjarasamningum og aðrir hópar launafólks hafa fengið í launahækkanir undanfarnar vikur og mánuði.

Framsýn, stéttarfélag vill mynda breiða samstöðu innan aðildarfélaga ASÍ um þetta markmið, það er að koma í veg fyrir að félagsmenn innan ASÍ sitji enn og aftur eftir meðan aðrir hópar launafólks skammta sér vel á diskana  í boði samtaka atvinnurekenda. Slíkt athæfi er ólíðandi með öllu.“

mbl.is