Afnám gjaldeyrishafta hefur dregist verulega umfram það sem upphaflegar væntingar stóðu til. Þar vegur þyngst sú töf sem orðið hefur á uppgjöri þrotabúa föllnu bankanna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skoðun Viðskiptaráðs.
„Hagfelldasta lausnin fyrir alla aðila fælist í nauðasamningum þar sem byrði vandans væri skipt með ásættanlegum hætti á milli kröfuhafa og þjóðarbúsins. Viðskiptaráð telur að svigrúm fyrir slíkri lausn sé til staðar,“ segir á vef Viðskiptaráðs en skoðun þess má lesa í heild hér.