„Tjaldsvæðin eru að fyllast af tjöldum og veðrið er æðislegt, þannig að þetta fer rosalega vel af stað,“ segir Þóra Björg Sigurðardóttir í Vatnaskógi en þar fer fram hátíðin Sæludagar nú um verslunarmannahelgina.
„Fólk er bara að grilla ommelettur í góða veðrinu,“ segir Þóra. Dagskráin hófst í gær en búist er við að mesti straumurinn komi í dag. „Það er mikil barnadagskrá um helgina. Nú klukkan 11 hófst barnastund og svo verður keppt í fótbolta. Síðan eru bátarnir opnir allan daginn og það er frítt í þá fyrir fjölskyldur. Hoppukastalar og leiktæki sjá síðan um að börnunum leiðist ekki. Þetta er mikil fjölskylduhátíð, vel hugsað um börnin og alltaf eitthvað í boði.“
Í fyrra var veðrið ekki upp á sitt besta, en samt mættu um 1300 manns. Þóra segist búast við svipuðum fjölda í ár. Flestir þeir sem leggja leið sína á hátíðina eru barnafjölskyldur. „Svo er líka töluvert af eldra fólki. Það er kannski minnst af fólki í kringum 20–30 ára en það er samt líka unglingadagskrá í höndum annarra unglinga og svo er ball annað kvöld. Þannig séð höfðar þetta til allra aldurshópa,“ segir Þóra.
„Ég hugsa það sé aðallega barnadagskráin sem trekkir fólk. Þú borgar inn á svæðið en svo er allt frítt fyrir börnin, hoppukastalarnir og bátarnir. Jóhanna Guðrún söngkona kemur svo hingað annað kvöld sem og töframaðurinn Einar Mikael. Það er í rauninni ekkert sem þú þarft að kaupa inni á svæðinu, það er mjög hentugt. Svo er þetta bindindishátíð og margir kannski koma hingað þess vegna.“
Flestir þeir sem koma gista annaðhvort í tjöldum eða í skálum. „Það eru mjög fáir í húsbílum. Það er tjaldsvæði og svo er boðið upp á svefnpokapláss í skálum en það er allt uppbókað.“