Mikil en jöfn umferð var á vegum í Árnessýslu um helgina. Ellefu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu en engin alvarleg slys á fólki í þeim. Lögregla var kölluð til í fimm skipti vegna slysa á fólki.
Lögreglan á Selfossi vill koma þakklæti til ökumanna sem sýndu öðrum tillitssemi í umferðinni. Ekki síður er þökkum komið til þeirra vegfaranda sem hringdu til lögreglu með ábendingar um ökumenn sem sýndu ábyrgðarleysi og glannaskap í umferðinni.
Í mörgum tilvikum náðu lögreglumenn til þessara ökumanna. Upplýsingar af þessu tagi eru mjög mikilvæg viðbót við þá frábæru leiðbeiningar frá starfsfólki Samgöngustofu sem fluttar voru í fjölmiðlum alla helgina. Allt þetta leiddi til þess að nú er hægt að státa af því að enginn alvarleg slys urðu í umferðinni þessa miklu umferðarhelgi.