Svona færðu vel mótaðar augnabrúnir

Förðunarfræðingurinn Elín Erna Stef­áns­dótt­ir kenndi okkur að framkalla fullkomna húð í seinustu viku en í þetta sinn ætlar hún að kenna lesendum að móta augnabrúnirnar. Til þess að fá augnabrúnirnar til að líta sem best út notar hún augnabrúnapenna í ljósum lit og glært augnabrúnagel. Elín, sem heldur úti blogginu ElinLikes.com, mun svo kenna okkur að gera seiðandi og sparilega augnförðun á næstunni.

mbl.is