Styðja kjarabaráttu lækna

Læknar við störf.
Læknar við störf. Ljósmynd/ Ásdís Ásgeirsdóttir

Stjórn BHM lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands og áréttar mikilvægi þess að starfsaðstæður og laun heilbrigðisstarfsfólks, sem og annarra háskólamenntaðra sérfræðinga á Íslandi verði samkeppnishæf við kjör sem bjóðast erlendis.

Ella eru horfur á enn frekari atgervisflótta sérfræðinga, með tilheyrandi afturför fyrir íslenskt samfélag, segir í tilkynningu frá BHM.

„Atgervisflótti háskólamenntaðra er samfélaginu dýrkeyptur; fjárfesting í þekkingu fer forgörðum, skatttekjur tapast og undirstöður almannaþjónustu veikjast. Stjórn BHM skorar á stjórnvöld að afstýra þeirri þróun með forgangsröðun í þágu þekkingar á vinnumarkaði,“ segir enn fremur í tilkynningu.

mbl.is