Verkfall skurðlækna hafið

Enn fleiri læknar lögðu niður störf á miðnætti.
Enn fleiri læknar lögðu niður störf á miðnætti. mbl.is/Ómar Óskarsson

Verkfall Skurðlæknafélags Íslands hófst á miðnætti í nótt. Skurðlæknar leggja niður störf í og því verða aðeins gerðar skipulagðar valaðgerðir næstu daga. Tveggja daga verkfall á flæði- og aðgerðasviði spítalans stendur enn yfir. 

Samninganefnd félagsins fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan tvö í dag. Síðasti fundur í kjaradeilu Læknafélags Íslands var í gær og verður næst fundað á fimmtudag. 

mbl.is