Félagsráðgjafafélag Íslands lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu lækna. Félagið segir, að það sé forgangsmál að bæta kjör og vinnuaðstæður lækna á Íslandi og gera laun háskólamenntaðra sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu samkeppnisfær við þau kjör sem finnist í nágrannalöndunum.
„Félagsráðgjafafélag Íslands hvetur fjármálaráðherra til að ganga til samninga við lækna svo snúa megi frá frekari atgervisflótta lækna og annarra sérfræðinga og byggja upp heilbrigðisþjónustu með öllum þeim sérfræðingum sem gæðaþjónusta þarf á að halda,“ segier í ályktun frá stjórn félagsins.