Miðað við áætlaðan fjölda aðgerða á degi hverjum á Sjúkrahúsinu á Akureyri má búast við því að fresta þurfi allt að 120 aðgerðum á meðan verkfall lækna stendur yfir.
Um er að ræða bæði stærri aðgerðir á borð við liðaskipti og skjaldkirtilsaðgerðir og minni aðgerðir eins og gallblöðruaðgerðir, að því er segir í frétt Vikudags.
Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga á SAk, segir róðurinn mun þyngjast eftir verkfallið dregst á langinn.