„Það var fundað í klukkutíma í dag og í raun og veru gerðist ekki neitt. Staðan er nú óbreytt frá síðasta fundi,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, í samtali við mbl.is.
Boðað hefur verið til næsta fundar á þriðjudaginn.
Það er því ljóst að verkfallsaðgerðir lækna munu hefjast að nýju á mánudaginn, þá hjá aðgerðar- og flæðisviði og stendur það yfir í tvo daga.
Bráðamóttaka, endurhæfingardeildir, öldrunardeildir og fleira heyrir undir flæðisvið spítalans en á aðgerðasviði er gjörgæslan, skurðstofur, speglanir, svæfing, blóðbanki og fleira.
Það þýðir m.a. að svæfingalæknar fari í verkfall. „Svæfingalæknar falla undir aðgerðarsvið; þá falla því niður aðgerðir sem þurfa svæfingar og deyfingar, nema auðvitað bráðaaðgerðir sem geta ekki beðið,“ segir Þorbjörn.
Samninganefnd Skurðlæknafélags Íslands fundaði einnig hjá ríkissáttasemjara í dag. Að sögn Helga Kjartans Sigurðssonar, formanns félagsins, bar fundurinn engan árangur. Ekki hefur verið boðað til næsta fundar í deilunni.