Mótmælendur í Ferguson hafa kveikt í byggingum, skotið á lögreglu og grýtt hana og farið ránshendi um verslanir í bænum eftir að kviðdómur ákvað að ákæra ekki lögreglumann sem skaut átján ára óvopnaðan pilt til bana. Pilturinn var svartur og hefur málið vakið mikla ólgu og spurningar um störf lögreglunnar.
Lögreglan á erfitt með að hemja mótmælendur og óeirðir hafa blossað upp. Kveikt hefur verið í það minnsta tólf byggingum í bænum þar sem 21 þúsund manns búa, aðallega svartir.
Lögreglustjórinn segir að minnsta kosti 150 skotum hafi verið skotið að lögreglu sem hafi ekki svarað fyrir sig í sömu mynt. 29 mótmælendur hafa verið handteknir. Einn lögreglumaður var skotinn í handlegginn en það var þó ekki í Ferguson heldur í öðru úthverfi St Louis. Mótmæli hafa farið fram í mörgum borgum Bandaríkjanna í dag.
Ríkisstjóri Missouri hefur kallað til auka lögreglulið til að bregðast við óeirðunum í Ferguson.
Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, og fjölskylda hins 18 ára gamla Michaels Brown, báðu fólk að halda ró sinni í kjölfar ákvörðunar kviðdómsins sem var kunngerð um kl. 2 í nótt að íslenskum tíma, átta í gærkvöldi að staðartíma.
Kviðdómurinn komst að því að lögreglumaðurinn hefði skotið Brown í sjálfsvörn.
Saksóknari í St Louis, Robert McCulloch, sagði að lögreglumaðurinn Darren Wilson hefði skotið 12 sinnum eftir að hafa lent í „útistöðum“ við Brown. Því hefði kviðdómur ekki séð neina ástæðu til að ákæra hann.
Um leið og saksóknarinn hafði sagt frá niðurstöðunni brast móðir Browns í grát og hópur fólks, sem komið hafði saman til að fylgjast með, hrópaði í sífellu: „hei, hei, hó, hó! Þessar drápslöggur verða að fara“ (e. Hey, hey, ho, ho! These killer cops have got to go).
Í ágúst stigu sjónarvottar fram og sögðu að Brown hefði rétt upp hendur og hefði verið að gefast upp fyrir lögreglumanninum er hann var skotinn. En saksóknarinn segir að sönnunargögn bendi til þess, sem og aðrir vitnisburðir, að það hafi ekki gerst.
Fjölskylda Browns sendi frá sér yfirlýsingu í nótt þar sem sagði: „Við höfum orðið fyrir sárum vonbrigðum að sá sem drap barnið okkar þurfi ekki að horfast í augu við afleiðingarnar. Við biðjum alla af einlægni að mótmæla friðsamlega.“