Cheryl Boone Isaacs, forseti Óskarsakademíunnar, vill sjá meiri fjölbreytileika þegar kemur að tilnefningum til Óskarsverðlauna. Margir hafa gagnrýnt núverandi tilnefningar, en allir tuttugu leikararnir sem eru tilnefndir í ár, bæði í aðal- og aukahlutverki, eru hvítir.
Þá eru einvörðungu karlar tilnefndir í flokkunum besti leikstjórinn og besti handritshöfundurinn.
Óskarsakademían, sem ákveður hverjir hljóta tilnefningar, hefur setið undir harðri gagnrýni, að því er segir á vef BBC.
Boone Isaacs segist hins vegar vera stolt af þeim sem hlutu tilnefningar en að samtökin ynnu að því að auka fjölbreytileikann.
Boone Isaacs er fyrsti forseti akademíunnar sem er þeldökkur. Hún segir að undanfarin tvö ár hafi akademían lagt sig fram og gert meira en nokkru sinni fyrr til að auka fjölbreytileika samtakanna, m.a. með því að taka á móti nýjum félögum og taka á móti fleiri ólíkum hópum.
Hún tekur hins vegar fram að hún myndi gjarnan vilja sjá enn meiri fjölbreytileika.