Sergeir Ryabkov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands og aðalsamningsmaður ríkisins í kjarnorkuviðræðunum við Íran, telur meira en helmingslíkur á því að samningar muni nást um hina umdeildu kjarnorkuáætlun íranskra stjórnvalda.
Í dag hófust viðræður Írana við stórríkin sex, Rússland, Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Þýskaland, á nýjan leik eftir nokkurt hlé. Hafa samningsmenn ríkjanna sett sér það markmið að semja fyrir næsta miðvikudag, 1. apríl.
Utanríkisráðherrar ríkjanna sögðu eftir samningafundinn í dag, sem fram fór í svissnesku borginni Lausanne, að lausn væri í sjónmáli.
Kjarnorkuáætlun Írans þykir afar umdeild og vilja stórveldin hindra það að Íranir komi sér upp kjarnavopnum.