Einn af samningamönnum íranskra stjórnvalda í kjarnorkudeilunni segir óvíst hvort það takist að ljúka viðræðum Írans og stórveldanna áður en fresturinn rennur út, þann 30. júní næstkomandi.
Abbas Araghchi, varautanríkisráðherra Írans, sagði við fjölmiðla í dag að nokkuð væri í að viðræðunum lyki. Þeim yrði haldið áfram í allan júnímánuð og sennilega eitthvað lengur, að því er fram kemur í frétt AFP.
Ný lota í samningaviðræðunum hófst í Vín í gær. Eins og kunnugt er skrifuðu deiluaðilar undir rammasamkomulag í apríl sem er hugsað sem ákveðinn grunnur að formlegu samkomulagi. Markmið stórveldanna er meðal annars að tryggja að Íranar geti ekki komið sér upp kjarnorkuvopnum.
Samkomulagið gengur út á að kjarnorkuáætlun Írana verði sett takmörk en á móti verði refsiaðgerðum gegn þeim aflétt.