Nýbökuðum föður og eiginmanni hefur verið gert að sæta nálgunarbanni í hálft ár frá heimili eiginkonu sinnar og barna vegna ofbeldis sem hann hefur beitt hana. Meðal annars á fæðingardeildinni. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti nýverið úrskurð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þar að lútandi og Hæstiréttur hefur vísað kæru mannsins frá dómi þar sem kæran barst eftir að kærufrestur rann út.
Í greinargerð lögreglustjóra frá því í byrjun maí kemur fram að hjónin hafi eignast tvíburadætur þann 23. apríl sl. Sunnudaginn 3. maí sl. hafi foreldrar konunnar tilkynnt lögreglu að þau óttuðust um hana eftir að hafa rætt við hana í síma. Hún hafi verið á heimili tengdamóður sinnar ásamt eiginmanni og dætrum og hann hefði beitt konu sína ofbeldi.
Þrýsti á sauma eftir keisaraskurð og sló hana Lögregla hafi farið á vettvang og rætt við konuna sem hafi lýst því að hún hefði legið með manninum upp í rúmi þar sem hann hafi haldið utan um hana. Hún hafi verið með sauma á maganum eftir keisaraskurð en hann hefði ýtt á saumana svo hana verkjaði. Hún hafi reiðst honum vegna þessa og viljað fara út af heimilinu og tekið dætur þeirra í fangið. Hún hafi ætlað að hringja og biðja um að hún yrði sótt en þá hafi hann rifið símann úr sambandi, öskrað á hana og rifið í hár hennar.
Meðan hún hafi haldið á dætrum þeirra hafi hann rifið hana niður í gólfið á hárinu og þar sem hún hafi legið, hafi hann slegið hana í andlitið með flötum lófa. Móðir hans hafi þá tekið stúlkurnar og maðurinn haldið áfram að rífa í hár konu sinnar og slegið hana ítrekað með flötum lófa í andlitið. Sjá hafi mátt áverka á konunni, bæði í andliti og á höndum. Maðurinn var handtekinn í kjölfarið á vettvangi.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur einnig fram að þegar lögregla hefði rætt við konuna hefði hún sagst óttast eiginmann sinn og að þetta væri ekki í fyrsta skiptið sem hann veittist að henni.
Ógnaði henni og eyðilagði tölvu og síma hennar á fæðingardeildinni
Hún hafi skýrt frá tilviki þegar hann hefði ógnað henni á fæðingardeildinni eftir að dætur þeirra fæddust. Frásögn konunnar um það fái stoð í framburði hjúkrunarfræðings á Landspítalanum sem hafi verið á vakt umrætt sinn. Lögregla hafi einnig rætt við foreldra hennar sem hafi lýst því fyrir lögreglu að samband hjónanna hefði einkennst af mikilli kúgun og ofbeldi og segðust þau óttast mjög um hana og dætur hennar þegar hún væri í kringum mann sinn. Fram hafi komið hjá foreldrum hennar að maðurinn hefði sent á systur eiginkonu sinnar mynd sem sýndi konunni í kynferðislegum athöfum. Einnig lægju fyrir sms-samskipti hans við móður hennar þar sem hann viðurkenni háttsemi sína gagnvart konu sinni að hluta.
Móðir hans neitar að tjá sig við lögreglu um ofbeldið
Lögreglustjóri tekur fram að maðurinn neiti að hafa ráðist á konuna þann 3. maí sl. en geti ekki gefið skýringar á áverkum hennar. Hann kannist hins vegar við að hafa brotið síma og tölvu sem hún var með á fæðingardeildinni og að hafa sent systur hennar mynd af henni. Þá hafi lögreglan haft samband við móður hans en talið sé að hún hafi orðið vitni að atvikinu á heimili hennar en hún neiti að tjá sig.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur loks fram að 6. maí sl. hafi lögreglu borist skilaboð sem maðurinn hafi sent konu sinni sama dag, þrátt fyrir að hann vissi að hann sætti nálgunarbanni gagnvart henni. Þau gögn sem lögregla hafi undir höndum beri með sér að konunni stafi mikil ógn af manninum og ljóst sé að hún hafi undanfarið orðið fyrir miklu ónæði og vanlíðan af hans hálfu á sama tíma og hún sé að jafna sig eftir fæðingu tveggja barna og hefði þurft á öllum hans stuðningi að halda.