Veðurskipið á ferð um landið

Iceland Airwaves blæs til tónleika hringinn í kringum landið í júní. Ferðin ber yfirskriftina „Veðurskipið Líma“ og með í för verða Emmsjé Gauti, Agent Fresco og dj flugvél og geimskip. 

Auk þess munu sigurvegararnir úr Músíktilraunum, Rythmatik, koma fram sem sérstakir gestir í Bolungarvík. Frítt verður inn á alla tónleika og verða eftirtaldir staðir heimsóttir auk Bolungarvíkur: Grenivík, Raufarhöfn, Breiðdalsvík og Reykjanesbær. Miðar á Iceland Airwaves verða gefnir heppnum tónleikagestum á hverjum stað, segir í fréttatilkynningu. 

Dagskráin er sem hér segir:

10. júní Bolungarvík – Félagsheimilið
11. júní Grenivík – Grenivíkurskóli
12. júní Raufarhöfn – Félagsheimilið Hnitbjörg
13. júní Breiðdalsvík – Frystihúsið
14. júní Reykjanesbær – Hljómahöllin

Allir tónleikar hefjast kl. 20:00.

Sjá nánari upplýsingar hér.

mbl.is