Enginn kjarnorkusamningur á milli Írans og stórveldanna er betri en „slæmur samningur“. Þetta segir Philip Hammond, utanríkisráðherra Bretlands.
Á föstudag hófst síðasta stig viðræðna á milli stjórnvalda Írans og hins svokallaða PF+1 hóps, en hann skipa öll fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna auk Þýskalands. Snúast viðræðrunar um að setja takmarkanir á kjarnorkuáætlun Írana og í staðinn muni ríkin aflétta viðskiptaþvingunum gegn landinu.
Frestur til þess að ljúka samningaviðræðunum rennur út 30. júní næstkomandi. „Við eigum enn mikið verk fyrir höndum ef við ætlum að reyna að ná samningum,“ sagði Hammond við fjölmiðla í Vín, þar sem viðræðurnar fara fram.
„Ég hef oft sagt það áður og ég mun segja það aftur í dag, enginn samningur er betri en slæmur samningur,“ sagði hann. Það væru takmörk fyrir því hversu langt stórveldin gætu gengið.
Íranar og stórveldin sex hafa sett sér frest til 30. júní til að ná endanlegu samkomulag um kjarnorkuáætlun þeirra fyrrnefndu. Samkvæmt því yrði áætluninni sett takmörk til að koma í veg fyrir að Íranar geti þróað kjarnorkuvopn en í staðinn verði refsiaðgerðum létt af þeim að hluta til.