„Óskiljanleg“ niðurstaða Rögnunefndar

Reykjavíkurflugvöllur hefur verið í Vatnsmýri í 70 ár.
Reykjavíkurflugvöllur hefur verið í Vatnsmýri í 70 ár. mbl.is/Árni Sæberg

Bæjarráð Reykjanesbæjar gerir athugasemdir við þá aðferð sem beitt var þegar skoðaðir voru kostir fyrir staðsetningu innanlandsflugs og koma fram í skýrslu svokallaðrar Rögnunefndar. „Telja verður furðulegt að ekki voru skoðaðir þeir kostir sem augljósastir eru fyrir innanlandsflug þ.e.  Reykjavíkurflugvöllur og  Keflavíkurflugvöllur,“ segir í bókun ráðsins sem samþykkt var á fundi í morgun.

„Að komast að þeirri niðurstöðu að rétt sé að staðsetja nýjan flugvöll í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli með tilheyrandi kostnaði, er auðvitað óskiljanlegt, þegar nánast allir innviðir fyrir innanlandsflugið eru tilbúnir í Keflavík. Bæjarráð áréttar fyrri skoðun sína að ef og þegar ákveðið verður að flytja innanlandsflugið frá Reykjavík er Keflavíkurflugvöllur skynsamlegasti kosturinn,“ segir ennfremur í bókuninni.

mbl.is