1,2 milljarðar liggja óhreyfðir

mbl.is/Eggert

Atvinnuvegaráðuneytið segir að við undirbúning fjárlagafrumvarpsins hafi orðið ljóst að  um 1.200 milljónir kr. liggi enn óhreyfðar í Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Hefur fjárhæðinni ekki verið ráðstafað í þau verkefni sem úthlutað hefur verið til. Ráðuneytið segir ljóst að bæta þurfi úr skipulagi og framkvæmd til að tryggja fjármunir sem ráðstafað hefur verið skili sér í bættri aðstöðu. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu

Þar segir, að á undanförnum tveimur árum hafi 1.700 milljónum verið varið til verndar og uppbyggingar á ferðamannastöðum í gegnum Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Aldrei hafi jafn miklir fjármunir verið settir í þennan málaflokk. Tæpar  500 milljónir hafi komið frá gistináttaskatti en 1.230 milljónir hafi komið í gegnum sérstakar úthlutanir ríkisstjórnarinnar árin 2014 og 2015. 

„Við undirbúning fjárlagafrumvarpsins varð ljóst að umtalsverðir fjármunir, eða um 1.200 m.kr., liggja enn óhreyfðir í Framkvæmdasjóðnum og hefur ekki verið ráðstafað í þau verkefni sem úthlutað hefur verið til. Unnið hefur verið að því í sumar að kortleggja ástæður þess og eru þar ýmsar skýringar á. Þar má nefna að skipulagsvinnu er ólokið, undirbúningur og hönnun ýmis konar hefur tekið lengri tíma, ágreiningur um eignarhald svæða hefur tafið framkvæmdir o.s.frv. Meta þarf í kjölfarið hversu háum fjárhæðum stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða geti endurúthlutað þar sem ekki sé lengur þörf fyrir fjármunina í þau verkefni sem þeim var upprunalega úthlutað til,“ segir ráðuneytið.

Þá kemur fram, að með stórauknum framlögum til þessa málaflokks á síðustu tveimur árum hafi stjórnvöld sýnt skýran vilja sinn til þess að tryggja uppbyggingu nauðsynlegra innviða á ferðamannastöðum landsins. Staða Framkvæmdasjóðsins sýni hins vegar glögglega að skortur á fjármagni sé ekki stærsta hindrunin í uppbyggingunni þar sem vel yfir helmingi verkefna sem úthlutað hafi verið til sé enn ólokið.

„Ljóst er að bæta þarf úr skipulagi og framkvæmd allra þeirra aðila sem að þessu koma til þess að tryggt verði að þeir fjármunir sem ráðstafað hefur verið skili sér í bættri aðstöðu. Unnið er að nákvæmri greiningu á stöðu verkefnanna og verða ákvarðanir um frekari framlög til Framkvæmdasjóðsins teknar við meðferð fjárlagafrumvarpsins á Alþingi þegar þær upplýsingar liggja fyrir.“

mbl.is