Sumt ekki í samræmi við gögn

Þórður Arnar Þórðarson

Rannsókn á tveimur kynferðisbrotum sem kærð voru í síðasta mánuði og hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum í dag er í algjörum forgangi. Rannsókn málanna miðar vel. Lögregla hefur fundið fyrir mjög sterkum viðbrögðum í samfélaginu í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla ummálin. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þar segir einnig að sumt í umfjöllun fjölmiðla sé ekki í samræmi við fyrirliggjandi rannsóknargögn lögreglu, rannsókn málanna miði vel en lögregla geti ekki upplýst um málsatvik, m.a. með tilliti til meintra þolenda. 

Tilkynningin í heild

Vegna frétta um rannsóknir tveggja kynferðisbrota, sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum í dag og undanfarna daga, vill lögreglan á höfuðborgarsvæðinu taka fram að málin eru í algjörum forgangi hjá kynferðisbrotadeild embættisins og allt kapp er lagt á að upplýsa þau.

Rannsókn þeirra miðar vel, en eðli málsins samkvæmt getur lögreglan hins vegar ekki upplýst um málsatvik, m.a. með tilliti til meintra þolenda. Nauðsynlegt er þó að taka fram að sumt í umfjöllun fjölmiða er ekki í samræmi við fyrirliggjandi rannsóknargögn lögreglu.

Lögreglan hefur fundið fyrir mjög sterkum viðbrögðum í samfélaginu í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla um áðurnefnd mál, og hafa henni borist fjölmargar fyrirspurnir áhyggjufullra borgara vegna þessa, ekki síst á samfélagsmiðlum embættisins.

Það er skiljanlegt og undirstrikar mikilvægi þess að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldi stöðugt áfram að vinna að grundvallarmarkmiði sínu, sem er að tryggja öryggi og öryggistilfinningu þeirra sem búa, starfa og dvelja í umdæmi hennar.

mbl.is