Vilja aukið fé í byggðamál

Sigurður Bogi Sævarsson

Samtök sveitarfélaga og landshlutasamtök á öllu landinu hafa sent áskorun á ráðherra og þingmenn um að við gerð fjárlaga verði settir auknir fjármunir í málefni sem þau telja mikilvæg fyrir byggðaþróun. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Málaflokkarnir eru: Þjónusta við fatlað fólk, samningar um sóknaráætlun, samgöngumál (nýframkvæmdir, viðhald og þjónusta). Almenningssamgöngur og ljósleiðaravæðing.

„Landshlutasamtökin eru sem fyrr reiðubúin til að leggjast á árar með sínum kjörnu fulltrúum og ríkisvaldinu við að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Það verður þó ekki gert nema vilji til þess sjáist í fjárlagafrumvarpinu gagnvart þessum lykilmálum,“ segir í fréttatilkynningu sem þau hafa sent á fjölmiðla.

mbl.is