Hefur ríka hagsmuni af uppbyggingu á Hlíðarenda

Framkvæmdir á Valssvæðinu að Hlíðarenda. neyðarflugbrautin ofarlega til hægri.
Framkvæmdir á Valssvæðinu að Hlíðarenda. neyðarflugbrautin ofarlega til hægri. mbl.is/Árni Sæberg

Reykjavíkurborg hefur ríka hagsmuni af því að ríkið standi við gerða samninga þannig að hægt verði að halda áfram með nauðsynlega uppbyggingu á Hlíðarenda. Þetta kom fram í bréfi borgarstjóra til innanríkisráðuneytisins frá 30.október sl. Eins og fram kom á mbl.is fyrr í dag hefur innanríkisráðherra svarað bréfinu og var þar rökum borgarinnar um að ríkinu sé skylt að tilkynna um lokun NA-SV flugbrautar Reykjavíkurflugvallar mótmælt. Þá mótmælir innanríkisráðuneytið mögulegri bótaskyldu ríkisins vegna framkvæmda á Hlíðarendasvæðinu.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, staðfesti í samtali við mbl.is fyrr í dag að borgin ætli að leita réttar síns og hefur borgarlögmanni verið falið að stefna ríkinu. 

Fyrri frétt mbl.is: Ráðherra hafnar kröfu borgarstjóra

„Reykjavíkurborg hefur ítrekað farið fram á við innanríkisráðuneytið að það tilkynni um lokun NA-SV flugbrautarinnar og hlutist til um endurskoðun á skipulagsreglum um Reykjavíkurflugvöll í samræmi við skuldbindingar sem ríkið gekk undir með samningum frá 19. apríl 2013 og 25. október 2013 sem kveða á um að flugbrautinni verði lokað,“ segir í tilkynningu frá borginni.

Vitnað er í fyrnefnt bréf frá borgarstjóra til innanríkisráðuneytinu þar sem fram kemur að efni ráðherra ekki framangreindar skuldbindingar muni Reykjavíkurborg höfða mál á hendur íslenska ríkinu til viðurkenningar kröfum sínum.

Í bókun borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata er lögð áhersla á að með fyrri samningum hafi ríkið skuldbundið sig til að loka norðaustur/suðvestur flugbraut (braut 06/24) á Reykjavíkurflugvelli og breyta skipulagsreglum  fyrir Reykjavíkurflugvöll til samræmis við lokun flugbrautarinnar.

„Með framlögðu bréfi innanríkisráðherra, dags. 3. nóvember 2015, hafnar ráðherrann að skylt sé að tilkynna um lokun brautarinnar og gera breytingar á skipulagsreglum fyrir Reykjavíkurflugvöll. Með vísan til þeirrar afstöðu sem birtist í bréfi innanríkisráðherra, dags. 3. nóvember sl., er borgarlögmanni falið að höfða mál á hendur ríkinu til viðurkenningar eða staðfestingar á framangreindum skuldbindingum ríkisins,“ segir í bókuninni.

Í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins kemur fram að þeir hafi lagst gegn því að lóðum yrði úthlutað og framkvæmdir almennt heimilaðar „vegna þess að NA/SV flugbrautin er til staðar og því óábyrgt af Reykjavíkurborg að taka ákvarðanir sem skapa kostnað hjá þriðja aðila.“

Í bókuninni segir jafnframt að slíkur kostnaður geti fallið á skattgreiðendur í Reykjavíkurborg ef illa fer. „Innanríkisráðherra áréttar í bréfi sínu, dags. 3. nóv. sl., það sem einnig kom fram í bréfi frá ráðherra 17. apríl sl. að Reykjavíkurborg sé það fullkunnugt að leyfi fyrir framkvæmdum og öðrum ráðstöfunum á Hlíðarendasvæðinu séu undanfari byggingaframkvæmda sem ekki geti orðið af að óbreyttum skipulagsreglum fyrir flugvöllinn.

Ráðherra áréttar að útgáfa byggingarleyfa á Hlíðarendasvæðinu sé alfarið á ábyrgð og áhættu Reykjavíkurborgar. Um leið ítrekar ráðherra mikilvægi þess að ríki og Reykjavíkurborg vinni áfram að samkomulagi um framtíð Reykjavíkurflugvallar í samráði við þá sem hagsmuni eiga að gæta. Þetta verður ekki skýrara að mati borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem ítreka fyrri afstöðu sína um að meirihlutinn í Reykjavíkurborg láti af því að gefa út leyfi og gera aðrar ráðstafanir á Hlíðarendasvæðinu því það varðar öryggismál í flugi og tengingu höfuðborgarinnar við landið í heild og það skapar mikla fjárhagslega áhættu fyrir Reykvíkinga að vinna með þeim hætti sem meirihlutinn gerir. Nær er af hálfu meirihlutans að vinna að lausn varðandi framtíð flugvallarins í samstarfi við innanríkisráðherra.“

 Borgarráðsfulltrúar meirihlutans lögðu þá fram svohljóðandi bókun:

„Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa samþykkt báða samninga Reykjavíkurborgar við ríkið um lokun þriðju brautarinnar, kaup á landi ríkisins í Skerjafirði og alla samninga við Valsmenn um uppbygginguna á Hlíðarenda.“

Tilkynning Reykjavíkurborgar í heild sinni.

Málið var rætt á fundi borgarráðs í morgun. Mynd úr …
Málið var rætt á fundi borgarráðs í morgun. Mynd úr safni. mbl.is/Ernir Eyjólfsson
mbl.is