Skólinn er ekki fyrir alla bara suma“

Sigrún Harðardóttir lektor við Háskóla Íslands fjallaði um líðan framhaldsskólanema …
Sigrún Harðardóttir lektor við Háskóla Íslands fjallaði um líðan framhaldsskólanema í erindi sínu á fundi Náum áttum. mbl.is/Golli

Yfir 70% þeirra nem­enda sem líður illa þegar þau hefja nám í fram­halds­skóla ljúka ekki námi en hlut­fallið snýst við þegar kem­ur að þeim ung­menn­um sem standa vel að vígi strax við upp­haf náms. Þetta er meðal þess sem kom fram í er­indi Sigrún­ar Harðardótt­ur lektors við fé­lags­ráðgjafa­deild Há­skóla Íslands á fundi sam­tak­anna Náum átt­um um skóla fyr­ir alla - eða hvað?. Sigrún fjallaði þar um doktors­rit­gerð sína „Líðan fram­halds­skóla­nem­enda: Um námserfiðleika, áhrifaþætti og ábyrgð sam­fé­lags“ 

Brott­fallið vandi sem fram­halds­skól­arn­ir sitja uppi með

Að henn­ar sögn er mikið brott­fall úr fram­halds­skól­um vandi sem fram­halds­skól­inn hef­ur setið uppi með þó svo að hann eigi ekki al­farið sök að máli en frá til­komu al­mennr­ar braut­ar í fram­hald­skól­um árið 1999 fjölgaði nem­end­um sem eiga í vanda í fram­halds­skól­um lands­ins.

Rann­sókn henn­ar er unn­in við Mennta­skól­ann á Eg­ils­stöðum en Sigrún starfaði þar um ára­bil. Hún seg­ir að hjá ME hafi verið boðið upp á stuðningsúr­ræði fyr­ir nem­end­ur með ADHD og þar sé boðið upp á sér­staka nám­skrá fyr­ir nem­end­ur sem koma verst und­ir­bún­ir inn í fram­halds­skól­ana (al­menn­ar braut­ir). Nem­end­ur sem hafa kannski fallið á öll­um sam­ræmdu próf­un­um og fengið ein­stak­lings­miðaða kennslu í grunn­skóla sem ekki er boðið upp á í fram­halds­skól­um. 

 „Þetta er svo­lítið eins og braut­ar­stöð“

Sigrún seg­ir að það hái fram­halds­skól­un­um, einkum og sér í lagi áfanga­skól­un­um, hversu erfitt er að fylgj­ast með hverj­um og ein­um nem­anda. „Þetta er svo­lítið eins og braut­ar­stöð,“ seg­ir Sigrún.

Fjölmenni var á fundi samtakanna Náum áttum þar sem umræðuefnið …
Fjöl­menni var á fundi sam­tak­anna Náum átt­um þar sem umræðuefnið var skóla­kerfið. mbl.is/​Golli

Í rann­sókn­inni skoðaði hún þrjá ár­ganga í í ME, það er ný­nema við skól­ann 2005-2007 með því að leggja sjálfs­matslista fyr­ir þá og síðan hringdi hún í þá fjóru og hálfu ári síðar og kannaði hvar þeir voru stadd­ir í líf­inu. 

Hún seg­ir að þegar hún ræddi við nem­end­urna sem höfðu hafið nám á öðrum braut­um en al­mennri braut sem var ætluð þeim sem ekki höfðu náð til­skil­inni ein­kunn við lok grunn­skóla­náms.

Af þeim sem voru hætt­ir námi, 71,5%, komu inn í skól­ann með slæma líðan. þannig að það er greini­legt að það eru tengsl milli líðanar og náms­fram­vindu í fram­halds­skóla. 54% þeirra sem höfðu lokið námi komu inn í skól­ann með góða líðan og góða færni. 

ADHD er mik­ill vendipunkt­ur - ef nem­end­ur voru með ADHD þá skipti það miklu máli varðandi gengi í skóla. 

Sláandi munur er á milli nemenda sem koma af bóknámsbrautum …
Slá­andi mun­ur er á milli nem­enda sem koma af bók­náms­braut­um og þeirra sem eru á al­menn­um braut­um þegar kem­ur að brott­falli úr fram­halds­skól­um. Krist­inn Ingvars­son

Í er­indi Sigrún­ar kom fram að 69% þeirra sem eru öðrum braut­um koma inn í skól­ann með góða líðan og getu á meðan hlut­fallið er 46,5% þegar kem­ur að þeim nem­end­um sem hófu nám á al­mennu braut­un­um þrem­ur. 

Lang­hæst hlut­fall þeirra sem hættu námi komu af al­mennu braut­un­um 1-3. Af 67 nem­end­um sem hófu nám á nátt­úru­fræðibraut höfðu þrír hætt námi, 10 af þeim 42 sem hófu nám á fé­lags­fræðibraut höfðu hætt námi og fimm af 24 nem­end­um á mála­braut. 

Af nem­end­um á al­mennri braut 3 höfðu 8 af þeim 22 sem hófu nám hætt námi. Á al­mennri braut 2 hófu 58 nem­end­ur nám en fjóru og hálfu ári síðar höfðu 29 hætt námi en 14 lokið námi. Á al­mennri braut 1 hófu 57 nám og tveir höfðu lokið því fjóru og hálfu ári síðar en 42 höfðu hætt námi. Þrett­án voru enn í námi.

Sigrún benti á í er­indi sínu á að engu virðist skipta þótt nem­end­ur fari í aðra skóla því 30% fóru í aðra skóla en þeir voru al­veg jafn­mikið að detta út og þeir sem héldu áfram í ME. „Þetta gef­ur vís­bend­ingu um að þetta gildi al­mennt um fram­halds­skól­ana,“ seg­ir Sigrún.

72% þeirra sem byrjuðu á bók­náms­braut ljúka námi. Við þurf­um ekki að hafa áhyggj­ur af þess­um hópi. Þetta eru krakk­ar sem geta lært og hætta kannski námi tíma­bundið en koma inn í skól­ann aft­ur því þau vita að þau geta lært. Ég hef meiri áhyggj­ur af hinum hópn­um. Þeim sem geng­ur illa, dett­ur út og spurn­ing hvort komi inn aft­ur,“ seg­ir Sigrún.

Af bók­námsnem­um voru 15% enn í námi fjóru og hálfu ári síðar og seg­ir Sigrún að það sé ekki al­veg mark­tækt því ef síðari hluti rann­sókn­ar­inn­ar hefði verið gerð hálfu ári síðar, það er fimm árum eft­ir að nám hófst, þá hefði hlut­fall þeirra sem hefðu lokið námi hækkað mjög. 13% þess­ara nem­enda höfðu hætt námi.

Þrátt fyr­ir úrræði þá detta þess­ir nem­end­ur út úr skóla­kerf­inu

Sigrún seg­ir það dap­urt þegar búið er að eyða svona mik­lum tíma og mik­illi orku í að reyna að gera eitt­hvað af viti og búa til ein­hverj­ar náms­leiðir og stuðning fyr­ir þessa nem­end­ur, „þá erum við því miður að missa þau flest út. Það er þessa nemen­ur sem geng­ur illa í námi,“ seg­ir Sigrún og vís­ar til þeirra úrræða sem gripið hef­ur verið til inn­an fram­halds­skól­anna við að styðja nem­end­ur sem eiga í erfiðleik­um í námi.

Stuðningur foreldra,kennara og vina skiptir miklu máli fyrir framhaldsskólanemendur.
Stuðning­ur for­eldra,kenn­ara og vina skipt­ir miklu máli fyr­ir fram­halds­skóla­nem­end­ur. AFP

Þegar horft er á nem­end­ur á al­mennu braut­un­um þrem­ur er niðurstaðan sú að 16% höfðu lokið námi fjór­um og hálfu ári eft­ir að þau hófu fram­halds­skóla­nám, 28% voru enn í námi en 56% höfðu hætt í námi.

Stytt­ing náms nýt­ist ekki þess­um krökk­um

„Stytt­ing í náms í frama­halds­skól­um í þrjú ár er úrræði sem ekki er að henta slök­um nem­end­um,“ seg­ir Sigrún og seg­ir það skoðun sína að það sé breyt­ing sem henti þeim nem­end­um sem held­ur miklu frek­ar þeim sem ekki þarf að hafa áhyggj­ur af og hinum hópn­um.

Sigrún seg­ir að komi nem­end­um með námserfiðleika mjög á óvart hvað þeim gekk illa og að þau upp­götvuðu að þau voru ekki eins og önn­ur börn. Þau töluðu um í viðtöl­um við Sigrúnu að þau hafi þurft að tak­ast á við skóal­sam­fé­lag sem skil­greindi þau sem frá­vik . Því áhersl­an var á rask­an­ir þeirra ekki styrk­leika þeirra og áhuga þeirra á að leggja sig fram. Þau upp­lifðu van­líðan, órétt­læti og reiði yfir því að vera öðru­vísi. 

Hún tók dæmi í fyr­ir­lestr­in­um af um­mæl­um þeirra: „Ég gat ekki lært staf­ina... heyrði ekki mun­inn á stöf­un­um.“ 

„Það er sko hræðileg­ast í heimi að þurfa að kyngja því að maður þurfi að vera leng­ur að læra en mann­eskj­an við hliðina á manni og kyngja því að maður er með sva­on ekki beint galla held­ur svona öðru­vísi heila ein­hvern veg­inn... maður nátt­úru­lega vill vera eins og hinir og graut­fúlt og svekkj­andi að vera leng­ur en aðrir að læra.“

Ósátt við stuðning sem þau fá

Mörg hver voru ekki sátt við þann stuðning sem þau fengu og töldu að þau voru ekki að fá þann stuðning sem þau þurftu á að halda. Að námið væri ekki nægj­an­lega ein­stak­lings­miðað og all­ir með rask­an­ir sett­ir und­ir sama hatt.

„Eina aðstoðin sem ég fékk var að ég var tek­in út úr stærðfræðitíma og var lát­in með ein­hverj­um... ein­hverj­um þú veist mann­eskj­um sem voru miklu verr stadd­ar en ég... það eru all­ir sett­ir und­ir sama hatt hvort sem þeir eru með ADHD eða þung­lyndi eða hvað var í gangi og... það er ekki sniðugt.“

Stuðning­ur for­eldra og kenn­ara skipt­ir mestu máli

Eitt er það sem all­ir viðmæl­end­ur nefndu að sögn Sigrún­ar en það er stuðning­ur for­eldr­a. Það hafi í raun skorið út um hvort þau gátu klárað námið. Að þau sem áttu for­eldra sem studdu þau til náms gátu lokið námi því þau fengu hvatn­ingu sem þau þurftu á að halda. Eins nefndu ein­hver að kenn­ari sem hafi trú á þeim skipti sköp­um ef heim­ilið bregst og eins góðir vin­ir.

„Hann var svona þannig kenn­ari sem vildi hjálpa mér og lagði auka­lega á sig til þess að kenna mér og sýndi áhuga á því að ég næði ár­angri. Hann sagði líka stund­um „já flott hjá þér“ og „ég veit að þú get­ur þetta“ og það fannst mér hvetj­andi.“

Er hugsi yfir öll­um grein­ing­un­um 

Sigrún seg­ir að það sé niðurstaða rann­sókn­ar­inn­ar að skól­inn er ekki fyr­ir alla held­ur bara suma.

Það þurfi að breyta vinnu­lagi inn­an skól­anna - erum búin að vinna út frá lækn­is­fræðileg­um hugs­un­ar­hætti í marga ára­tugi - grein­ingarpakk­ar og sér­kennsla virðist ekki duga til og skila nægj­an­leg­um ár­angri.

Hún seg­ist hugsi yfir grein­ing­ar­mál­um hér á Íslandi þar sem grein­ing­um og rösk­un­um fjölg­ar hratt og ekk­ert lát virðist vera á því. Kostnaður Reykja­vík­ur­borg­ar vegna sér­kennslu nem­ur tveim­ur millj­örðum króna á ári. 

Að sögn Helga Gísla­son­ar sér­kennslu­full­trúa á skóla­skrif­stofu Hafn­ar­fjarðar fer um 30% af fjár­magni því sem varið er til skóla­mála í sér­kennslu í sveit­ar­fé­lag­inu.

Sigrún seg­ir að það þurfi að skýra al­mennt hlut­verk fram­halds­skóla sem ennþá ein­beiti sér að því að und­ir­búa fólk und­ir há­skóla­nám. „Það þurfi að skil­greina bet­ur hlut­verk hans í þessu upp­eldi og þroska svo ung­menni geti tek­ist á við lífið að loknu námi, seg­ir Sigrún og bend­ir á að það sé mjög mik­il­vægt að opna umræðu í þjóðfé­lag­inu um þá sem eiga í erfiðleik­um með nám og ábyrgð sam­fé­lags­ins í þeim efn­um.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina