Útsending RÚV frá rauða dregli Óskarsverðlaunanna er hafin en stjörnurnar eru löngu teknar að streyma að.
Meðal þeirra sem hafa þegar látið sjá sig þegar þetta er skrifað eru Sofia Vergara, Olivia Wilde og unnusti hennar Jason Sudeikis.
Frétt mbl.is: Allt um Óskarinn 2016
Sjálf Óskarsverðlaunahátíðin hefst formlega klukkan 01:30 og mun mbl.is að sjálfsögðu færa lesendum sínum allar helstu fréttir næturinnar.
Þar að auki verður reglulega bætt við myndasyrpuna hér að ofan sem sýna mun öll helstu merkismenni Hollywood í sínu allra fínasta pússi.