„Þetta er bara „happy“ gæi sko“

Friðrik Þór Halldórsson tók þessa skemmtilegu mynd af David Beckham.
Friðrik Þór Halldórsson tók þessa skemmtilegu mynd af David Beckham. Skjáskot af Instagram

„Þetta er bara „happy“ gæi sko,“ segir myndatökumaðurinn Friðrik Þór Halldórsson sem náði að smella mynd af David Beckham þegar hann stökk upp í bíl á Reykja­vík­ur­flug­velli. Friðrik segir David hafa haldið á dóttur sinni og brosað breitt þegar hann kom sér inn í bílinn sem beið þeirra.

David og Victoria voru fljót að koma sér inn í bílinn með Björgólfi Thor og Kristínu Ólafsdóttur sem tóku á móti þeim á vellinum að sögn Friðriks. Spurður hvort einhverjir ljósmyndarar hefðu verið á svæðinu svarar Friðrik neitandi. „Nei, nei. Það voru þarna nokkrar stelpur sem voru að fylgjast með. Þetta var ekki neitt neitt, það voru engir ljósmyndarar eða neitt. Það var enginn að angra þau, einhverjir heilsuðu og þau rétt litu við og stukku svo inn í bíl.“

Friðrik segir barnfóstru hafa fylgt hópnum en hjónin eru hér ásamt börnum sínum. „Ég áttaði mig ekki á hvort öll börnin þeirra voru með í för,“ segir Friðrik að lokum.

Beckham-fjöl­skyld­an á Íslandi

Beckham-fjölskyldan kom til landsins í morgun.
Beckham-fjölskyldan kom til landsins í morgun. AFP
mbl.is