Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins stendur vaktina vegna fregna af valdaráninu í Tyrklandi og beinir þeim tilmælum til íslenskra ferðamanna í Tyrklandi og Íslendinga búsettum í landinu að láta aðstandendur á Íslandi vita af sér. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Flestar samskiptaleiðir aðrar en símalínur virðast lokaðar í Tyrklandi og tekið hefur í gildi útgöngubann í helstu borgum. Beinir utanríkisráðuneytið þeim tilmælum til Íslendinga að halda sig innandyra og fylgjast náið með þróun mála hvar sem það er statt í landinu. Utanríkisráðuneytið aflar frekari upplýsinga og verða frekari tilmæli send út eftir því sem ástand mála skýrist. Hægt er að ná í borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 5459900 allan sólarhringinn.