Lilja Dögg hvetur til stillingar

Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra segir að valdaránstilrauninni í Tyrklandi virðist hafa verið hrundið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðherra.

Lilja segir að mikilvægt sé að lýðræðislega kjörin stjórnvöld haldi völdum og að stöðugleiki komist á sem fyrst og hvetur til stillingar og sátta í landinu.

Engar vísbendingar hafa borist um að Íslendingar í Tyrklandi hafi verið í hættu en borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins fylgist náið með þróun mála.

Frétt mbl.is: Margir hringdu í neyðarsímann

„Vopnað valdarán gegn lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum er árás á lýðræðið. Á alþjóðavettvangi talar Ísland fyrir lýðræðislegum ferlum og mannréttindum sem öllum ríkisstjórnum ber að virða,“ segir Lilja.

Upplýsingar á vef og Facebook-síðu ráðuneytisins eru uppfærðar reglulega, þar með taldar ferðaviðvaranir.

mbl.is