Íslensku stelpurnar meðal þeirra sterkustu

Katrín Tanja sigraði á leikunum í fyrra. Verða þrjár íslenskar …
Katrín Tanja sigraði á leikunum í fyrra. Verða þrjár íslenskar stelpur á verðlaunapalli í ár? /mbl.is

Þær Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Annie Mist Þórisdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir og Þuríður Erla Helgadóttir munu etja kappi í kvennaflokki á heimsleikunum í crossfit sem hefjast á þriðjudag. Þar munu þær berjast um nafnbótina hraustasta kona heims en íslensku stelpurnar þykja eiga sterka möguleika á mótinu.

Í meðfylgjandi myndbandi sem fyrirtækið CrossFit Inc. birti á Facebook-síðu sinni í gær er skyggnst inn í líf þeirra Katrínar Tönju, Annie Mistar og Ragnheiðar Söru og fylgst með leið þeirra á heimsleikana.

Myndbandið er góð upphitun fyrir leikana og ekki síður ágætis Íslandskynning. Í myndbandinu er skyggnst bak við tjöldin í undirbúningsferli stelpnanna fyrir heimsleikana og bregður fyrir myndskotum af íslensku landslagi og náttúru.

mbl.is