Fordæmir mannréttindabrot í Tyrklandi

AFP

Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs lýsir yfir samstöðu með tyrkneskum almenningi, harmar mannfall í landinu og tekur undir með þeim sem hafa þungar áhyggjur af stöðu og þróun mála í Tyrklandi og nú síðast neyðarástandinu sem lýst hefur verið í landinu.

Þingflokkurinn fordæmir harðlega fjöldahandtökur, uppsagnir þúsunda óbreyttra borgara og skerðingu á ferðafrelsi á grundvelli pólitískra skoðana. Í tilkynningu frá þingflokknum segir að slíkt sé algjörlega ótækt og kalli á alvarlegar athugasemdir á alþjóðlegum vettvangi.

Þingflokkurinn fordæmir jafnframt brot á mannréttindum harðlega og telur mikilvægt að mannréttindi allra tyrkneskra borgara séu tryggð, lýðræði virt í hvívetna og að tyrkneskir borgarar njóti fullrar verndar óháð stöðu eða stétt.

Þá áréttar þingflokkurinn stuðning við lýðræðislegar stofnanir og lýðræðislega stjórnskipun sem eru grunnstoðir siðmenntaðra samfélaga og fordæmir alla tilburði til pólitískra hreinsana.

Loks leggur þingflokkurinn áherslu á að utanríkisráðherra nýti hvert tækifæri á alþjóðlegum vettvangi til að koma skýrt á framfæri áhyggjum íslenskra stjórnvalda og íslensks almennings af mannréttindabrotum í Tyrklandi.

mbl.is