Yfirvöld í Tyrklandi hafa fyrirskipað lokun hátt í 80 fjölmiðla og er þetta nýjasti liðurinn í herferð stjórnvalda gegn þeim sem þau telja eiga aðild að tilraun til að steypa Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta af stóli 15. júlí sl.
Fréttavefur BBC segir að tilkynnt hafi verið um lokun þriggja fréttastofa, 16 sjónvarpsstöðva, 45 dagblaða og 15 tímarita.
Fyrr í dag fóru stjórnvöld þá fram á varðhald yfir 47 blaðamönnum, en sl. mánudag var gefin út handtökutilskipun á hendur 42 fréttamönnum.
Flestir blaðamannanna á nýja listanum störfuðu hjá Zaman-dagblaðinu, sem hætt hefur verið útgáfu á, samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum.
Þá voru 1.700 liðsmenn í tyrkneska hernum leystir frá störfum í aðskilinni aðgerð, þar af 149 hershöfðingjar.
Það var ríkisfjölmiðillinn Resmi Gazete sem tilkynnti lokun fjölmiðlanna og að hermennirnir hefðu verið leystir frá störfum. Meðal þeirra hershöfðingja sem voru látnir taka pokann sinn voru 87 hershöfðingjar í landhernum, 30 í flughernum og 32 flotaforingjar.
Tyrkneski herinn greindi frá því fyrr í dag að um 1,5% tyrkneska hersins hefðu tekið þátt í valdaránstilrauninni í landinu fyrr í mánuðinum og hefðu 35 flugvélar, 37 þyrlur, 74 skriðdreka og þrjú skip í vopnabúri sínu.
8.651 hermaður hefði tekið þátt í tilrauninni, þar af 1.214 nemar innan hersins sem hefðu slegist í hóp uppreisnarmannanna.
Um 16.000 manns hafa verið handteknir í kjölfar tilraunarinnar, en Erdogan Tyrklandsforseti hefur heitið því að hreinsa ríkisstofnanir af þeirri „veiru“ sem kom uppreisninni af stað.
Að minnsta kosti 246 létu lífið og yfir 2.000 særðust í átökunum sem fylgdu tilrauninni.