Meðal þeirra framkvæmda sem unnið er að á forsetasetrinu á Bessastöðum er að komast fyrir myglu og raka sem gert hefur vart við sig í íbúðarhúsinu á staðnum. Þetta kemur meðal annars fram í svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn frá Kjarnanum.
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid geta ekki flutt inn með fjölskyldu sína fyrr en að framkvæmdum loknum en síðast voru húsin á Bessastöðum tekin í gegn árið 1996 áður en forveri Guðna, Ólafur Ragnar Grímsson, tók við forsetaembættinu.
„Við úttekt mátti sjá vísbendingar um að þéttingar utan með gluggum væru farnar að gefa sig og ummerki um raka á parketi má líklega rekja til leka frá gluggum. Í ljós kom einnig að rakavörn á efri hæð er að hluta til óþétt auk þess sem loftun þaksins er sumsstaðar takmörkuð þar sem einangrun leggst alveg upp að borðaklæðningu. Sjá mátti ummerki um mygluvöxt á borðaklæðningu á afmörkuðum svæðum,“ segir meðal annars í svarinu sem undirritað er af Stefáni Thors, húsameistara ríkisins.