Atvinnuveganefnd Alþingis ætlar að ræða stöðuna sem upp er komin eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála stöðvaði framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4. Kristján Möller, fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni sem óskaði eftir fundinum, segir að kalla ætti málsaðila á fund nefndarinnar.
„Eftir skoðun og samtöl við fjölda aðila tel ég rétt að nefndin fundi og kalli á sinn fund t.d. fulltrúa Landsnets og Landsvirkjunar, fulltrúa sveitarfélaganna á framkvæmdasvæðinu, fyrirtækið PCC og fulltrúa Landverndar,“ segir í tilkynningu frá Kristjáni þar sem hann greinir frá því að Jón Gunnarsson, formaður nefndarinnar, hafi fallist á að funda um málið á þriðjudag.
Úrskurðarnefndin felldi tvo úrskurði á föstudag fyrir viku um stöðvun framkvæmda vegna ákvarðana sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar um að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4. Úrskurðirnir eru til bráðabirgða á meðan nefndin fjallar um kærur Landverndar vegna útgáfu framkvæmdaleyfanna.
Talið er að úrskurðirnir geti tafið afhendingu orku til kísilvers PCC á Bakka sem er í kjördæmi Kristjáns.
Fréttir mbl.is: