Ríkisstjórinn í Norður-Karólínu hefur lýst yfir neyðarástandi í borginn Charlotte vegna átaka milli mótmælenda og lögreglu aðra nóttina í röð. Þjóðvarðlið hefur verið sent til borgarinnar en átökin brutust út eftir að lögreglan skaut svartan mann til bana þar á þriðjudag.
Einn mótmælandi er í lífshættu eftir að tveimur almennum borgurum lenti saman, segir í tilkynningu frá borgaryfirvöldum.
Á þriðjudag var Keith Lamont Scott, 43 ára, skotinn til bana af svörtum lögreglumanni. Scott lést af völdum áverkanna á sjúkrahúsi. Að sögn lögreglu var hann vopnaður byssu og hættulegur. Það stangast á við orð ættingja, sem segja að Scott hafi ekki verið vopnaður byssu heldur hafi hann haldið á bók. Þegar fréttist af dauða hans braust út mikil reiði og ruddust mótmælendur inn á götur sem voru lokaðar vegna atviksins. Lögregla beitti táragasi gegn þeim en það virtist hafa takmörkuð áhrif. Sama var uppi á teningnum í nótt en lögregla beitti táragasi á nokkur hundruð mótmælendur sem höfðu safnast saman og mótmælt ofbeldi lögreglunnar gagnvart svörtu fólki í Bandaríkjunum.