Ríkisstjóri Kaliforníuríkis í Bandaríkjunum skrifaði undir lög í gær sem herða á nauðgunarlögum í ríkinu. Er þar kveðið á um að sé nauðgun framin þar sem fórnarlambið er undir áhrifum eða án meðvitundar þurfi gerandinn að sæta fangelsisvist.
Kemur þessi lagabreyting í kjölfar svokallaðs Stanford-máls, en þar var hinn 21 árs gamli Brock Turner sem var nemandi við skólann og liðsmaður í sundliði hans dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir að nauðga 22 ára gamalli ungri konu á bak við ruslatunnu, en konan var meðvitundarlaus.
Jerry Brown, ríkisstjóri Kaliforníu, skrifaði undir lögin nokkrum vikum eftir að Turner losnaði úr fangelsi, en hann sat inni í 3 mánuði af þeim 6 sem hann var dæmdur í. Vakti málið upp mikla reiði á sínum tíma og var sagt að árásarmaðurinn hafi verið gerður að píslarvotti í málinu.
Þá vakti vægur dómur upp mikil mótmæli og um milljón manns skrifuðu undir áskorun um að dómarinn í málinu yrði látinn fjúka. Aaron Persky, sem dæmdi málið, sagðist í dómnum hafa litið til þess að Turner hefði fengið góð meðmæli og væri ekki á sakaskrá. Sagði hann að fangelsisvist myndi hafa „veruleg áhrif á hann“. Lágmarksrefsing fyrir glæp af þessu tagi í Kaliforníuríki er tvö ár.
Frétt mbl.is: Turner látin laus eftir þrjá mánuði
Frétt mbl.is: Brosti þegar að honum var komið
Frétt mbl.is: Vilja að dómari verði látinn fjúka
Frétt mbl.is: Blaut tuska í andlit þolenda
Frétt mbl.is: Árásarmaðurinn gerður að píslarvotti