Klofin afstaða til fiskeldis á Vestfjörðum

Fundur um fiskeldismál á Vestfjörðum í gærkvöldi var vel sóttur.
Fundur um fiskeldismál á Vestfjörðum í gærkvöldi var vel sóttur. Myndin er af heimasíðu bb.is.

Í gær­kvöldi efndi Fjórðungs­sam­band Vest­f­irðinga til fund­ar um fisk­eld­is­mál og var gríðargóð mæt­ing enda mál­efnið brýnt hags­muna­mál fyr­ir svæðið.

Um­fjöll­un um fund­inn birt­ist fyrst á vefsvæði bb.is.

Pét­ur Mark­an formaður sam­bands­ins sem setti ráðstefn­una. Lagði hann áherslu á að fisk­eldið væri mik­il­væg at­vinnu­grein fyr­ir fjórðung­inn en að sama skapi nauðsyn­legt að gæta að nátt­úr­unni enda væri hún Vest­f­irðing­um kær.

Jón Helgi Björns­son talaði síðan fyr­ir hönd Land­sam­bands veiðifé­laga og lagði hann áherslu á það í sín­um mál­flutn­ingi hann teldi fisk­eldi gríðarlega ógn fyr­ir villta laxa­stofna. Að mati Jóns Helga væri um að ræða dauðans al­vöru og að hans menn myndu berj­ast af öll­um mætti gegn fyr­ir­huguðu fisk­eldi á Vest­fjörðum.

Hösk­uld­ur Stein­ars­son talaði svo fyr­ir hönd fisk­eld­is­stöðva og þar kvað eðli­lega við ann­an tón. Hösk­uld­ur sagði fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in vinna af mik­illi ábyrgð og reyna eft­ir megni að tak­marka áhrif á um­hverfið og nátt­úr­una.

Eins og kom fram í frétt á bb.is á föstu­dag var full­trú­um stjórn­mála­flokka sem bjóða fram í NV kjör­dæmi boðið að hafa fram­sögu og mættu átta full­trú­ar á panel­inn. Nán­ast ein­róma kom fram í þeirra fram­sög­um að þau væru hlynnt fisk­eldi en vildu um leið gera fyllstu kröf­ur til fisk­eld­is­fyr­ir­tækja. Full­trúi Pírata, Gunn­ar Guðmunds­son, setti var­ann við og vildi að land­eldi og/​eða lokaðar kví­ar yrðu bet­ur skoðaðar. Hann tók þó fram að Pírat­ar hefðu ekki myndað sér op­in­bera skoðun á fisk­eldi.

All­fjör­ug­ar umræður sköpuðust á fund­in­um um þær fyr­ir­spurn­ir sem komust að. At­hygli vakti að al­mennt virt­ust stjórn­mála­menn sem sátu fyr­ir svör­um ekki hafa sett sig vel inn í fisk­eld­is­mál­in. Skipu­lags­mál voru fund­ar­mönn­um hug­leik­in því eins og staða mála er í dag hafa hvorki íbú­ar né sveita­stjórn­ar­menn nokkuð um það að segja hvort veitt verði leyfi fyr­ir eldisk­ví­um rétt utan túng­arðs.

Auðlindar­enta var tals­vert rædd sem og hvort skylda ætti fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in til að staðsetja úr­vinnslu afurða á svæðinu. Í þess­um efn­um voru svör stjórn­mála­mann­anna ekki eins sam­hljóma og má segja að hvað varðar auðlindar­entu hafi svör verið í takti við viðhorf stjórn­mála­flokka til auðlinda­gjalds í sjáv­ar­út­vegi.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina