Stjórnarskipti og hlutafjáraukning hjá Arctic Fish

Arctic Fish stundar sjókvíaeldi á laxi.
Arctic Fish stundar sjókvíaeldi á laxi. mbl.is/Steinunn Ásmundsdóttir

Norway Royal Salmon (NRS) gekk frá kaup­samn­ingi á helm­ings­hlut í fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish fyr­ir tveim­ur mánuðum. 

Frá því er greint á frétt­asíðunni ilaks.no að fyr­ir opn­un kaup­hall­ar í Osló í gær hafi öll ákvæði kaup­samn­ings á helm­ings­hlut í fyr­ir­tæk­inu nú verið tal­in upp­fyllt og að NRS hafi aukið hluta­fé Arctic Fish um 29 millj­ón­ir evra - sem á gengi gær­dags­ins eru 3,6 millj­arðar króna.

Arctic Fish er í eigu þriggja aðila: NRS, kýp­verska fé­lags­ins Bremesco Hold­ing ltd. og Novo ehf. sem er skráð í Reykja­vík.

Stjórn Arctic Fish er skipuð þeim Svein Si­vertsen (formaður), Char­les Høst­lund, Ola Loe, Jerzy Rysz­ard Malek og Jadwiga Gruzyna Kasprzak.

Arctic Fish hét áður Dýr­fisk­ur og er leiðandi fyr­ir­tæki í fisk­eldi á Vest­fjörðum.

mbl.is