Norskir fjárfestar í íslensku sjókvíaeldi

Norsk félög hafa fjárfest umtalsvert í íslenskum fiskeldisfélögum.
Norsk félög hafa fjárfest umtalsvert í íslenskum fiskeldisfélögum. mbl.is/Steinunn Ásmundsdóttir

Öll norsku fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in sem hafa verið að fjár­festa í ís­lensku sjókvía­eldi eru skráð á verðbréfa­markaðinn í Osló.

Þetta kem­ur fram í Fisk­eld­is­frétt­um.

Stærst þess­ara fé­laga er SalM­ar sem fjár­fest hef­ur í Arn­ar­laxi með veltu upp á rúma 7 millj­arða norskra króna. Af­koma fyr­ir­tæk­is­ins á síðasta ári var mjög góð með EBIT upp á tæp 30%.

Norway Royal Salmon sem fjár­fest hef­ur í Arctic Fish er með rúma 3 millj­arða NOK í veltu. Af­koma fyr­ir­tæk­is­ins var ekki mjög góð árið 2015 og var EBIT aðeins rúm 7%.

Midt-Norsk Havbruk sem fjár­fest hef­ur í Fisk­eldi Aust­fjarða er þriðja stærsta fisk­eld­is­fyr­ir­tækið sem hef­ur fjár­fest í ís­lensku sjókvía­eldi. EBIT þess á ár­inu 2015 var rúm 20%.

Masoval Fiskeopp­drett, sem fjár­fest hef­ur í Lax­ar fisk­eldi, er minnst þess­ara fé­laga. Af­koma þess á síðasta ári var góð, með EBIT upp á tæp­lega 25%.

mbl.is