Yfirmaður Cumhuriyet handtekinn

Lögreglumaður á verði fyrir utan höfuðstöðvar Cumhuriyet í Istanbúl.
Lögreglumaður á verði fyrir utan höfuðstöðvar Cumhuriyet í Istanbúl. AFP

Tyrknesk yfirvöld hafa handtekið Akin Atalay, stjórnarformann dagblaðsins Cumhuriyet, sem er hliðhollt stjórnarandstöðunni í landinu.

Í síðustu viku voru níu starfsmenn dagblaðsins handteknir, samkvæmt upplýsingum blaðsins.

Atlalay var handtekinn á flugvellinum í Istanbúl eftir að hann kom heim frá Þýskalandi.

Frétt mbl.is: Heita því að „gefast ekki upp“

Á meðal þeirra níu sem voru handteknir á blaðinu í síðustu viku var núverandi ritstjóri þess. Þau sitja nú í gæsluvarðhaldi og bíða eftir því að réttað verði yfir þeim.

Þessar fregnir hafa aukið á áhyggjur víða um heim af frelsi fjölmiðla í Tyrklandi.

Mótmælendur halda á dagblaðinu Cumhuriyet eftir handtökur á dögunum.
Mótmælendur halda á dagblaðinu Cumhuriyet eftir handtökur á dögunum. AFP
mbl.is