Handtekinn fyrir heimilisofbeldi

 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann um þrjúleytið í nótt í austurhluta borgarinnar, hann er grunaður um heimilisofbeldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er málið í rannsókn.

Um klukkan 22 var síðan ferð ökumanns sem reyndist undir áhrifum fíkniefna stöðvuð af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is