Heimilisofbeldi á Seltjarnarnesi

Lögreglan handtók ölvaðan mann á Seltjarnarnesi um klukkan þrjú í nótt en hann er grunaður um heimilisofbeldi. Hann er vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar á málinu.

Maður var handtekinn grunaður um innbrot í fyrirtæki í Lágmúla um miðnætti. Ítrekað var búið að  tilkynna um manninn fyrr um kvöldið fyrir að brjóta rúður og fleiri brot. Maðurinn er vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls.

Lögreglan hafði afskipti af manni í Dugguvogi í gærkvöldi vegna vörslu fíkniefna og ökumaður sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttina (hefur aldrei öðlast slík réttindi) var stöðvaður í Breiðholti í nótt.

mbl.is