Ekki hefur verið óskað gæsluvarðhalds yfir manninum sem handtekinn var í gær, grunaður um að áreita ungar stúlkur og birta myndir af þeim á netinu. Í svari lögreglunnar á Suðurnesjum við fyrirspurn mbl.is segir að handtakan hafi ekki átt sér langan aðdraganda. Þá sé málið til rannsóknar.
Frétt mbl.is: Grunaður um að áreita ungar stúlkur
Fram kemur einnig í svarinu að ljóst sé að kærur gagnvart manninum muni berast „í fleirtölu“ vegna málsins. Maðurinn er erlendur og á fimmtugsaldri.
mbl.is fékk í gær staðfest hjá lögreglunni að hann yrði í haldi yfir nótt og að hann yrði yfirheyrður nánar í dag.