Francois Fillon verður forsetaframbjóðandi franska Repúblikanaflokksins. Fréttavefur BBC greindi frá því nú í kvöld að Alain Juppe, mótframbjóðandi Fillon, sé búinn að játa sig sigraðan.
Þegar búið var að telja mikinn meirihluta atkvæða hafði Fillon hlotið tæp 67% atkvæða, en Juppe 33,1%.
Eftir að úrslitin lágu fyrir sagði Fillon að nú þyrfti að grípa til aðgerða til að reisa réttlátara þjóðfélag.
Líklegt þykir að Fillon muni etja kappi við framjóðanda þjóðernisflokksins Front National, Marine Le Pen um forsetastólinn, þar sem Sósíalistaflokkurinn, sem er nú við völd í Frakklandi, nýtur lítils stuðnings meðal landsmanna.
„Nálgun mín mætir skilningi,“ sagði Fillon við stuðningsmenn sína. „Frakkar þola ekki þessa hnignun. Þess í stað vilja þeir sannleika og aðgerðir.“
Juppe, sem þótti hófsamari en mótframbjóðandi hans, óskaði Fillon til hamingju með stórsigurinn og hét honum stuðningi í forsetaslagnum.
Búið var að telja atkvæði frá 9.334 kjörstöðum af 10.229 þegar það lá fyrir að Fillon hefði hlotið 66,9% atkvæða. Fillon hafði verið spáð sigri í forvali flokksins, eftir að hann hlaut 44% atkvæða í fyrstu umferð forvalsins þar sem fyrrverandi forseti landsins, Nicolas Sarkozy, hlaut ekki nægan stuðning til að komast upp í aðra umferð.
Fillon gegndi embætti forsætisráðherra í forsetatíð Sarkozy. Hann er 62 ára kaþólikki og þykir íhaldssamur í skoðunum á málefnum á borð við fóstureyðingu og hjónaband samkynhneigðra.
Hann hefur lagt til umfangsmiklar breytingar á efnahagsstjórn landsins sem m.a. fela í sér að fækka störfum hjá hinu opinbera um 500.000 stöður. Þá vill hann binda endi á 35 stunda vinnuvikuna, hækka eftirlaunaaldur og afnema auðlegðarskatt.
Juppe, sem einnig hefur gegnt embætti forsætisráðherra, var upphaflega talinn líklegri til að verða valinn forsetaframbjóðandi flokksins, en Fillon reyndist mun sterkari í kappræðum frambjóðendanna vegna forkosninganna.