Gæti stórskaðað sérstöðu Íslands

Verkfall sjómanna hefur leitt til samdráttar í útflutningi á ferskum …
Verkfall sjómanna hefur leitt til samdráttar í útflutningi á ferskum fiski sem nemur tugum prósenta að sögn forstöðumanns útflutnings hjá Icelandair Cargo. mbl.is

Mikael Tal Grétarsson, forstöðumaður útflutnings hjá Icelandair Cargo, hefur þungar áhyggjur af verkfalli sjómanna og segir það geta stórskaðað sérstöðu Íslands í ferskum sjávarafurðum á erlendum mörkuðum. Hann segir samdráttinn í útflutningi í flugi þegar nema nokkrum tugum prósenta.

„Þetta hefur mismikil áhrif á viðskiptavini okkar,“ segir Mikael og vísar til þess hvort þeir séu að versla með fisk frá smærri eða stærri bátum. Hann segir Icelandair Group ætla að draga eins mikið úr flugi og hægt er, en þar sem mikill innflutningur sé í kringum hátíðarnar sé það erfitt.

„En við bregðumst við með niðurskurði í fragtvélum ef þetta dregst fram í janúar,“ segir Mikael. „En það eru samt langtímaáhrifin sem maður hefur mestar áhyggjur af,“ bætir hann við en hann segir hljóðið í erlendum söluaðilum sem hann hefur verið í sambandi við vera slæmt og þeir séu áhyggjufullir enda mikil eftirspurn á erlendum mörkuðum um þessar mundir. 

Hann segir að skortur á ferskum afurðum setja erlendum söluaðilum þá afarkosti að þýða frosinn fisk eða standa frammi fyrir skorti. „Við gætum misst sérstöðuna ef menn komast á bragðið með að þýða.“

mbl.is