Innanríkisráðuneytið skoðar nú möguleikann á opnun sérstakrar neyðarbrautar á Keflavíkurflugvelli. Skýr vilji er af hendi ráðherra fyrir því að sú flugbraut verði opnuð í stað suðvesturbrautarinnar sem var lokað á Reykjavíkurflugvelli í sumar.
Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is. Greint var frá því á miðvikudag að sjúkraflugvél Mýflugs, sem flytja átti sjúkling frá Höfn í Hornafirði til Reykjavíkur, hafi verið flogið til Akureyrar vegna veðurs. Haft var eftir Þorkeli Ásgeiri Jóhannssyni, flugstjóra hjá Mýflugi að við ríkjandi veðuraðstæður hefði verið hægt að lenda á suðvesturbrautinni, sem gjarnan er nefnd neyðarbraut, en henni var lokað í sumar.
Í svari innanríkisráðuneytisins segir að vegna fréttaflutnings af lokun suðvesturbrautar, og umfjöllunar í fjölmiðlum um mögulega notkun hennar vegna sjúkraflugs þrátt fyrir lokun vilji innanríkisráðuneytið taka eftirfarandi fram:
„Flugbraut 06-24 á Reykjavíkurflugvelli var lokað í kjölfar dóms Hæstaréttar um að brautinni skyldi lokað en dómurinn féll vegna málshöfðunar Reykjavíkurborgar á hendur ríkinu þar sem lokunar var krafist,“ segir í svari ráðuneytisins.
„Flugbraut með hliðstæða stefnu á Keflavíkurflugvelli, 07-25, hefur verið lokuð undanfarin ár en nú er til skoðunar hvort unnt verður að opna hana á ný. Vilji innanríkisráðherra til þess að opna þá flugbraut í stað hinnar lokuðu brautar á Reykjavíkurflugvelli er skýr.“
Isavia setti að ósk ráðuneytisins, nú í haust fram þrjár mismunandi kostnaðaráætlanir við opnun flugbrautar 07-25 á Keflavíkurflugvelli.
„Í ráðuneytinu er nú farið yfir þessa möguleika og metið hvort og hvaða leið unnt er að fara með tilliti til kostnaðar og mögulegra fjárveitinga til verkefnisins.“