Eðlilegt að eldisfyrirtækin greiði auðlindagjald

Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra segir eðlilegt að ríkið taki auðlindagjald af …
Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra segir eðlilegt að ríkið taki auðlindagjald af laxeldi við Íslandsstrendur þar sem um takmörkuð gæði sé að ræða. Mynd frá bb.is

Nýr um­hverf­is­ráðherra seg­ir brýnt að öll starf­semi, þar með talið lax­eldi, stand­ist kröf­ur um vernd­un um­hverf­is og nátt­úru.

„Mín sýn á alla fram­leiðslu og at­vinnu­upp­bygg­ingu, hvort sem það er lax­eldi eða eitt­hvað annað, er að starf­semi geti aðeins verið leyfð ef hún stenst kröf­ur um vernd­un um­hverf­is og nátt­úru,“ seg­ir Björt Ólafs­dótt­ir um­hverf­is­ráðherra í frétta­skýr­ingu Frétta­tím­ans um lax­eldi á Íslandi.

Ráðherr­an­um þykir eðli­legt að lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in greiði auðlinda­gjald í rík­is­sjóð. „Það er líka ljóst að vegna auk­inn­ar kröfu um burðarþol fjarða, að það eru ekki marg­ir staðir eða firðir hér við land þar sem hægt er að stunda fisk­eldi í stór­um stíl og þannig set­ur um­hverfið slíku eldi nátt­úru­leg­ar skorður.

En ein­mitt vegna þess að lax­eldi við Ísland verður alltaf tak­markað á þenn­an hátt finnst mér mjög eðli­legt að ríkið taki auðlinda­gjald fyr­ir þessi tak­mörkuðu gæði, það er þessa fáu firði sem eru nógu djúp­ir við Ísland til að bera fisk­eldið.“

Sjá á vefsvæði bb.is.

mbl.is