„Við erum að feta í fótspor feigðarinnar“

Fyrrverandi sjómaðurinn Bubbi Morthens segir umræðuna um sjávarútveg rammpólitíska en …
Fyrrverandi sjómaðurinn Bubbi Morthens segir umræðuna um sjávarútveg rammpólitíska en er á því að sjómenn eigi að hafa góð laun. mbl.is/Ómar Óskarsson

Bubbi Mort­hens var eitt sinn sjó­maður og hef­ur ort mikið um hafið alla tíð síðan. Hann seg­ir að það sé af sem áður var; sjó­mennsk­an eins og hún var fyr­ir daga kvót­ans sé í raun horf­inn heim­ur. Þá  finnst hon­um nýtt gullæði hafa gripið um sig hér­lend­is, í þetta sinn í formi lax­eld­is og seg­ir menn svo blindaða af gróðavon að þeir neiti að taka rök­um.

Ann­ar heim­ur fyr­ir tíma kvót­ans

Bubbi seg­ist hafa fylgst grannt með umræðunni og hún sé al­veg rammpóli­tísk. Þegar hann var á sjó hafi hins veg­ar bara verið farið út þegar viðraði.

„Ég var á sjó fyr­ir tíma kvót­ans. Þá var þetta allt öðru­vísi. Þá fóru menn og sóttu sjó­inn á meðan hann gaf og það viðraði. Laun­in voru nú ekk­ert rosa­leg nema hjá afla­hæstu bát­un­um. Ann­ars veidd­um við bara upp í trygg­ingu. Þetta er á þeim tíma sem fyrstu skut­tog­ar­arn­ir eru að koma til lands­ins, þannig að þetta um­hverfi var allt önn­ur skepna en það er í dag. Fyr­ir það fyrsta dóu menn til sjós mjög reglu­lega – það var bara alltaf ein­hver að deyja. Menn voru að drukkna og skip að fara niður, og það stóð bara eins og staf­ur á bók. Þetta ger­ist varla leng­ur, sem sýn­ir al­veg gríðarlega fram­för í ör­yggi sjó­manna,“ seg­ir Bubbi Mort­hens.

Sjó­menn moka engu gulli í vas­ann

„Síðan er það svo að ef menn skoða vinn­una þeirra, fjar­vist­ir frá fjöl­skyld­unni, um­hverfið sem þeir vinna í og aðbúnaðinn, þá er bara ekk­ert að því að sjó­menn hafi góð laun. En umræðan hef­ur verið vill­andi í þess­ari umræðu. Það er nefni­lega ekk­ert mál að taka út skip­stjóra, stýri­menn, vél­stjóra og kannski afla­hæstu þrjú skip lands­ins og segja há­seta­hlut sjó­manna vera 3 millj­ón­ir á mánuði. En það er ekk­ert þannig. Ég meina, skip­stjór­ar á afla­hæstu skip­un­um eru kannski með 60 millj­ón­ir á ári, en obbi sjó­manna er ekk­ert að moka gulli í vas­ann miðað við hvernig vinnu­um­hverfi þeirra og viðveru er háttað,“  seg­ir Bubbi.

Hann seg­ir sjó­mennsku hafa breyst mikið frá því sem var, svo mikið að um­hverfið hafi bara hrein­lega verið gjör­ólíkt. „Ég man þegar ég var 16 ára beitn­ingamaður á Bol­ung­ar­vík og við vor­um að veiða grá­lúðu, ein­hvern al­verðmæt­asta fisk sem veiðist í dag. Við vor­um bara á trygg­ingu, al­ger­um skíta­laun­um. Það er ekki þannig í dag sem bet­ur fer, enda eiga sjó­menn að hafa góð laun,“ seg­ir hann.

Síðasti Móhíkan­inn

 „Mér finnst sjó­menn vera að standa sig hel­víti vel í þess­ari kjara­bar­áttu sinni. Svo eru þeir með al­veg djöf­ull öfl­ug­an mann með sér í þessu núna, og sá er af gamla skól­an­um. Villi (Vil­hjálm­ur Birg­is­son) er rosa­flott­ur í þessu. Mér finnst hann vera síðasti Móhíkan­inn. Hann hef­ur sýnt og sannað að það eru enn þá til menn sem eru að keyra þetta af rétt­lætis­kennd og hug­sjón. Ég er ekki alltaf sam­mála Villa, til dæm­is með það að leggja Hval­fjörðinn í rúst. Hann tel­ur það gott fyr­ir at­vinnu­lífið hjá þeim og ég er eins ósam­mála hon­um og hugs­ast get­ur. Engu að síður er ég mjög hrif­inn af þess­um manni. Mér finnst hann flott­ur og hann er að vinna gott starf fyr­ir stétt sem á það skilið,“ bæt­ir hann við.

Bubbi Morthens við veiðar á Nesjasvæði Laxár í Aðaldal.
Bubbi Mort­hens við veiðar á Nesja­svæði Laxár í Aðal­dal. mbl.is/​Ein­ar Falur Ing­ólfs­son

Hrein­asta geðveiki

Bubbi seg­ist hlynnt­ur lax­eldi, að því til­skildu að eldið færi fram á landi eða í lokuðum hólf­um. Að hans mati er land­inn þó kom­inn í sama gull­grafaraæðið og hér ríkti fyr­ir hrun og síðar í ferðamannaiðnaðinum.

„Eins og haldið er á mál­um varðandi lax­eldi í fjörðunum okk­ar núna, óheft og opið öll­um, er þetta bara hrein­asta geðveiki. Menn sem eru að setja þetta niður eins og mál­in standa núna taka eng­um rök­um. Svo er ekk­ert að koma fram að það eru er­lend­ir aurgoðar frá Nor­egi sem hafa í raun­inni bara flúið frá Nor­egi og stinga sér niður hér. Norðmenn hafa nefni­lega vaknað og áttað sig á því hversu gríðarleg meng­un staf­ar frá þessu, og þeir hafa meira og minna eyðilagt all­ar sín­ar laxveiðiár,“ seg­ir hann með mikl­um þunga.

Dýr­asta laxveiðiá ver­ald­ar orðin erfðablönduð

Hann seg­ir eld­islaxa hafa fund­ist við foss­inn á efsta svæði Alta-ár­inn­ar í Nor­egi í fyrra. Það þýði ein­fald­lega það að síðasta vígi Norðmanna hvað lax­inn varðar sé fallið.

„Alta er dýr­asta laxveiðiá ver­ald­ar og hef­ur að geyma stærsta laxa­stofn sem fyr­ir finnst á jarðkringl­unni. Meðalþyngd­in þar er tíu kíló og áin hef­ur að geyma stærstu laxa sög­unn­ar,“ seg­ir Bubbi.

Það hafi verið ein­mitt þá sem Norðmenn áttuðu sig á að breyt­inga væri þörf, þar sem eld­islax hefði dreift sér í all­ar ár og firði.

„Alta er svona eins og Þing­vell­ir eru fyr­ir okk­ur, nán­ast eins og goðsagna­kennd­ur helg­istaður þeirra Norðmanna. En hingað geta komið menn og lagt und­ir sig hvaða fjörð sem þeir vilja fyr­ir skít á priki á meðan er­lend­is kost­ar leyfið eitt og sér hunduð millj­óna,“ seg­ir hann.

Bubbi er hlynntur laxeldi en óttast áhrif sjókvíaeldis á náttúru …
Bubbi er hlynnt­ur lax­eldi en ótt­ast áhrif sjókvía­eld­is á nátt­úru Íslands. Mynd úr safni.

Fót­spor feigðar­inn­ar

„Við erum að feta í fót­spor feigðar­inn­ar með þessu. Fólk mun vakna upp við það að firðirn­ir verða meira og minna ónýt­ir af grúti og drullu. Skoðið það bara á net­inu. Þar eru upp­tök­ur frá Skotlandi, Írlandi og Nor­egi og þar sést hvernig botn­inn und­ir eldisk­ví­un­um verður,“ seg­ir hann með mikl­um þunga.

„Svo mun ís­lenski laxa­stofn­inn eyðileggj­ast. Þar er ekk­ert „ef“ – það mun ger­ast. Það þarf ekk­ert að spyrja að því,“ bæt­ir Bubbi við.

Hann seg­ir þetta gegnd­ar­lausa skamm­sýni sem líkja megi við ferðamannaiðnaðinn. Hann hafi stækkað allt of hratt og menn séu enda­laust að moka upp á eft­ir hon­um, og það sama sé að ger­ast með lax­eld­is­mál­in.

Brigsl í stað mál­efna­legr­ar umræðu

Hann seg­ist ætíð verða var við að brigslað sé um að ann­ar­leg sjón­ar­mið hljóti að liggja að baki hjá hon­um þegar hann hvetji menn til að stíga var­lega til jarðar í þess­um efn­um, þar sem hann er yf­ir­lýst­ur laxveiðimaður.

 „Svona skot­grafar­hernaður er bara þessi ís­lenska aðferð. En þegar við reyn­um að fá þá að borðinu til að taka mál­efna­lega umræðu um þetta, þá er það ekki hægt held­ur. Þeir segja bara að þetta eigi ekki við hjá þeim, það sé öðru­vísi á þeim bæn­um. Hvernig í and­skot­an­um er það öðru­vísi? Þeir tala um sterk­ari kví­ar sem eigi að halda öll­um fiski inni, en við skul­um sjá hvað ger­ist þegar Kári ýfir ís­lensku firðina með lát­um. Það verður ekki eins og þegar kví­arn­ar dóla ró­lega í djúp­um og lygn­um Nor­egs­fjörðum. En samt eyðilögðu þeir allt þar svo ég spyr: Hvernig haldið þið að þetta fari hér?“ seg­ir Bubbi Mort­hens.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina