Tölvuþrjótar gerðu í gær tilraun til að svíkja hátt í sex milljónir króna út úr íslensku fyrirtæki með því að senda fölsk fyrirmæli í nafni framkvæmdastjórans. Greint er frá þessu á vef Landsbankans en fyrirtækið sem um ræðir er þar í viðskiptum og höfðu starfsmenn fyrirtækisins og bankans samvinnu um viðbrögð við svikatilrauninni.
Fölsku fyrirmælin voru í tölvupósti frá framkvæmdastjóra fyrirtækisins til annars yfirmanns hjá fyrirtækinu sem hefur heimild til að greiða reikninga. Í póstinum var viðkomandi beðinn um að millifæra andvirði tæplega sex milljóna króna á reikning hjá banka á meginlandi Evrópu. Starfsmaðurinn sá í gegnum svikamylluna og ekkert fé tapaðist. Þegar bið varð á að millifærslan skilaði sér sendu þrjótarnir ítrekanir og ráku á eftir greiðslu.
Á vef Landsbankans kemur fram að tilraunum til að svíkja fé út úr fyrirtækjum með því að falsa tölvupósta og gefa fölsk fyrirmæli um greiðslur hafi fjölgað undanfarin ár. „Landsbankinn telur fulla ástæðu til að vara fyrirtæki við tilraunum sem þessum og minnir jafnframt á að fyrirmælafalsanir eru einungis ein gerð netsvika,“ segir á vef bankans.